"Það er búið að bjóða okkur á mót í Lundi í Svíþjóð næsta vetur og stefnan er tekin þangað í desember," segir Alexander Harðarson, frístundaleiðbeinandi og hægri skytta eina hjólastólahandboltaliðs landsins.
Í liðinu, sem starfar undir merkjum íþróttafélagsins HK, eru um fimmtán manns. Alexander segir það hafa markað tímamót þegar HK ákvað að bjóða upp á íþróttir fyrir fatlaða innan félagsins. Hjólastólahandboltaliðið var stofnað fyrir rúmum tveimur árum en styttra er síðan þjálfari var fenginn til að þjálfa liðið. Liðið er eina hjólastólaliðið sem starfrækt er á landinu og því þurfa Alexander og félagar hans að ferðast út fyrir landsteinana til að geta keppt í íþróttinni. "Við höfum náttúrulega aldrei keppt áður og erum því ekki sérstaklega vel undirbúnir, en góðir hlutir gerast hægt."
Lítill hópur byrjaði að spila handbolta saman að sögn Alexanders, en hann hefur nú stækkað. "Það voru tveir í stjórn HK sem fannst vanta aukið úrval í íþróttir fatlaðra. Hingað til hafa fatlaðir helst tekið þátt í einstaklingsíþróttum en þetta er til dæmis fyrsta hópíþróttin sem fólk í hjólastól getur stundað," segir hann. "Ég komst sjálfur inn í ferlið í gegnum vini mína í stjórn HK og fyrst var þetta lítill hópur vina sem spilaði þjálfaralaust. Okkur fannst svo orðið tímabært að fá fleiri í hópinn og auglýstum eftir fólki meðal annars á Facebook og síðan þá hefur þetta stækkað skref af skrefi og nú erum við meira að segja komnir með þjálfara."
Liðið spilar eftir sömu reglum og í hefðbundnum handbolta en með einhverjum áherslubreytingum. Dómarinn er til að mynda utan vallar, mörkin eru lækkuð og enginn línumaður er í liðinu. Liðsmenn liðsins koma einnig frá ólíkum bakgrunni að sögn Alexanders, sumir hafa verið í hjólastól frá fæðingu, aðrir hafa lent í slysum en svo spilar einnig með þeim einn ófatlaður einstaklingur.
Inntur eftir því hvort önnur lið ætli að fylgja í fótspor HK segist Alexander vona að svo verði. "Fólk er mjög áhugasamt um íþróttina og ég hef heyrt að aðrir séu í svipuðum pælingum en hef ekki fengið það staðfest. Okkur þætti frábært ef fleiri bættust í hópinn og við fengjum andstæðing til að keppa á móti," segir hann að lokum.






















