01.01.2012 21:04
Árið 2011 líkur með því að hitta nágrannana áður en allt byrjar

Svona hefjast áramótin okkar, þetta hefst ekki nema að hitta góða nágranna.

Siggi og Jóhanna eru góðir nágrannar .... skemmtilegt að enda árið með að skála í ..... ????
01.01.2012 20:56
Áramótin

Skreytingarmeistari að störfum í Fannafoldinni fyrir áramóta knallið.....

Moka þurfti heilmikið áður en áramótahátíðn hófst. Gott að hafa aðstoð fyrir afa.


Nöfnurnar glæsilegu ....
09.11.2011 11:02
Ótitlað
Lamað fólk getur gengið á ný
Bandaríska fyrirtækið Ekso Bionics í Berkeley afhendir fyrsta tæki sitt, Exoskeleton, hugsanlega "gengil" á íslensku, í endurhæfingarstöð í Atlanta í Bandaríkjunum í næstu viku.
Dreifing til fleiri endurhæfingarstöðva hefst síðan í desember og gert er ráð fyrir að byrjað verði að selja búnaðinn til einstaklinga, sem eru í endurhæfingu undir handleiðslu sérfræðinga, um mitt næsta ár.
Eyþór Bender, forstjóri Ekso Bionics, hefur kynnt búnaðinn víða í Bandaríkjunum að undanförnu auk þess sem hann hefur meðal annars staðið fyrir kynningum í London og München. Í umfjöllun um tækjabúnað þennan í Morgunblaðinu í dag segir hann, að tækinu hafi verið sérlega vel tekið enda ekki á hverjum degi sem fólk, sem vegna lömunar hefur verið bundið við hjólastól jafnvel í áratugi, geti allt í einu gengið.
Búnaðurinn var fyrst kynntur fyrir um ári en hefur mikið verið endurbættur. Hann samanstendur af viðamiklum spelkum sem rafhlöður og fjórir mótorar knýja áfram, en hreyfingunum er stjórnað með litlum tölvum.
18.09.2011 20:04
Refsteinsstaðir, sönnun þess að við komum í heimsókn


25.08.2011 20:09
Ofbeldismenn hafa viðurkennt steranotkun grein Blaðið 2005
16.08.2011 21:23
Reykjavíkurmaraþonið 2011
bb.is | 16.08.2011 | 15:57Arna Sigríður hjólar hálfmaraþon
Ísfirðingurinn Arna Sigríður Albertsdóttir tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardag á handahjólinu sínu og ætlar að hjóla hálfmaraþon eða 21 kílómetra. Hún segir maraþonið leggjast afar vel í sig en hún tekur þátt til styrktar Grensásdeild Landspítalans, þar sem hún var í endurhæfingu í rúmlega hálft ár eftir að hún lamaðist í skíðaslysi 30. desember 2006. Að sögn Örnu Sigríðar hjálpaði starfið og starfsfólkið á Grensás henni ótrúlega mikið á sínum tíma og er hún þeim ævinlega þakklát. Aðspurð segist hún ekki vita til þess að fleiri muni hjóla í maraþoninu. "Ég held líka að handahjólið mitt sé eina sinnar tegundar á landinu í dag og finnst þetta því frábært tækifæri til að vekja athygli á því."Á þriðja tug Ísfirðinga eru skráðir í maraþonið og margir hverjir hlaupa til styrktar góðu málefni. Sem dæmi má nefna að Martha Ernstsdóttir hleypur einnig hálfmaraþon til styrktar íslenskum samtökum í Afríku ríkinu Togo sem heita: Sól í Tógo en þau eru að safna fyrir barnaheimili í Togo. "Mig langar til að leggja mitt af mörkum og þetta er mjög gott málefni," segir Martha. Halldóra Karlsdóttir hleyptur til styrktar meðferðarheimilinu í Krýsuvík. Hún segist vilja leggja sitt af mörkum til að efla það góða starf sem unnið er á Krýsuvík til að hjálpa ungu fólki að öðlast von um eðlilegt líf án fíkniefna.
Áhugasömum er bent á að hægt er að heita á Ísfirðinga, og aðra sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, upphæð að eigin vali í gegnum vefinn hlaupastyrkur.is. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða.












